Fréttir
Sundlaug Blönduóss
Mánudagur, 28. júní 2010

Planteikning af umhverfi íþróttamiðstöðvarinnar á BlönduósiTeikn - ráðgjöf og hönnun hefur unnið að umhverfisfrágangi í kringum nýja sundlaug og íþróttahús á Blönduósi.

Sundlaugin var opnuð þann 16. júní sl. og var sótt af 250 gestum fyrsta daginn. Gestir voru ánægðir með svæðið og nutu rennibrautirnar sérstakra vinsælda.

Heimasíða íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi

 

 
Tillaga að Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 í auglýsingu
Mánudagur, 28. júní 2010

Forsíða greinargerðarTeikn - ráðgjöf og hönnun hefur unnið tillögu að Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 sem fór í auglýsingu 23. júní sl.

 

Á heimasíðu Fjallabyggðar kemur fram:

Bæjarstjórn Fjallabyggðar auglýsir hér með tillögu að nýju aðalskipulagi Fjallabyggðar2008 – 2028  samkv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.  Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar, Gránugötu 24,  Siglufirði,  Ólafsvegi 4, Ólafsfirði og Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík   frá og með miðvikudeginum 23. júní 2010  til og með miðvikudagsins 21. júlí 2010.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til miðvikudagsins 4. ágúst 2010.
Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofu Gránugötu 24, Siglufirði eða Ólafsvegi 4, Ólafsfirði.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

 

Hér má nálgast skipulagsgögnin:

Greinargerð og umhverfisskýrsla

Sveitarfélagsuppdráttur

Þéttbýlisuppdráttur Siglufjarðar

Þéttbýlisuppdráttur Ólafsfjarðar

 
Ný heimasíða komin í loftið
Föstudagur, 25. júní 2010
Ný heimasíða Teikn var opnuð í dag. Heimasíðan er unnin í Joomla kerfinu, hönnun og forritun gerð af starfsfólki okkar.
 
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps
Föstudagur, 03. apríl 2009
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026, Efnistaka.

Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum 20. mars 2009 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 ásamt umhverfisskýrslu og auglýsist hún hér með.  Tillagan er auglýst með vísan til 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Aðalskipulagsbreytingin miðar að aukinni efnistöku í Vesturárdal, Vopnafjarðarhreppi úr 28 aðskildum námum þar af 3 sem ætlaðar eru til framtíðarnýtingar.  Samanlagt flatarmál fyrirhugaðra efnistökusvæða er 30 ha að stærð.  Tilgangurinn er fyrirhuguð uppbygging nýrrar vegtengingar Vopnafjarðar við Hringveg.
Skipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15 frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga frá 3. apríl 2009 til 15. maí 2009.  Tillagan er einnig til sýnis í sýningarrými Skipulagsstofnunar að Laugavegi 166, Reykjavík.
Þeir sem vilja gera athugasemd við tillöguna skulu gera það með skriflegum hætti í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 föstudaginn 15. maí 2009.  Hægt er að skoða skipulagstillöguna á vefsíðunni www.vopnafjardarhreppur.is. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögu þessa innan tilskilins frests telst samþykkur henni.
Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps

Hægt er að skoða skipulagsgögnin í viðhengjum hér að neðan:
 
 
Deiliskipulag hafnar- og miðsvæðis á Vopnafirði
Föstudagur, 10. október 2008

Hreppsnefnd Vopnafjarðarhepps samþykkti á fundi sínum 2. október 2008 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi hafnar- og miðsvæðis á Vopnafirði samkvæmt 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Skipulagssvæðið nær um mestan hluta hafnar-og miðsvæðisins á Vopnafirði.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Vopnafjarðarhepps, Hamrahlíð 15, frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga frá fimmtudeginum 9. október 2008 til fimmtudagsins 20. nóvember 2008.

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 3